Gleðilegt nýtt ár!!
Það er greinilegt að smáauglýsingar svínvirka. Setti auglýsingu á mbl.is til að auglýsa ljóta og leiðinlega leðursófann (a.k.a. skriflið) fyrir u.þ.b. 2 tímum síðan og er búin að losna við hann. Það verður komið í kvöld að ná í hann.... yesss.
Nýi sófinn minn er ÆÐI - svo flottur og þægilegur og æðislegur. En þar sem ég er með skriflið og nýja, flotta sófann báða inn í stofunni þá hef ég ekki getað notið nýja sófans til fulls EN þegar skriflið loksins fer þá verða nýir og bættir tímar í stofunni hjá Marý. Þá verður loksins hægt að liggja í sófanum (sem var ekki hægt í skriflinu), með timburmenn, borðandi pizzu, drekkandi kók og horfandi á video (sem var reyndar hægt í skriflinu en það verður bara miklu betra í nýja sófanum). Þannig að nú þarf einhver að halda þvílíkt partý svo ég geti dottið í það og verið með timburmenn daginn eftir. Er einhver sem býður sig fram???
Já, og btw - ákveðnir aðilar eru nýbúnir að kaupa flottasta "sjónvarp" sem ég hef séð og ég held að þessir aðilar munu halda næsta júróvision partý?? Er það ekki ;o) ???


<< Home